Föstudagur
Ég get ekki sagt ad þetta frí hafi verið kristilegt! Margir nýttu sér ef til vill þessa kristnu frídaga til ad fara í kirkju og samgleðjast fermingarbörnum á landsbyggðinni en ég get ekki sagt það sama. Enda kanski ekki þekkt fyrir ad sinna þessum hluta samfélagsins.. nema þá kanski helst fyrir ad upphefja gyðjunna, einnig að akitera og trúa þvi ad guð sé kona;) Finnst því plottið í da vinci lykklinnum algerlega brilljant og er algerlega tilbúin ad taka upp þá aðferð sem sá hópur tileinkar sér i bænaiðkun... Enda er varla til betri leið til ad nálgast það guðlega og alsælunna ;)
En að öðru.. Byrjaði fríið á því að koma dýrinnu á rútunna enda hafði hún fyrir löngu ákv. að eyða sínu fríi með föðurfjölsk. .. Planið mitt var að vera bara rólega þessa daga og læsa djamm og drykkju kvikindið einhversstaðar.... Föstudagurinn gekk samkv. plani og ég eyddi kvöldinnu í Hveragerði á upphersluheimilinnu hjá gömlu krúttunum mínum. Þau eru bara nokkuð sátt yfir ad vera þar, enda er hann ad koma sér i form fyrir róðurinn í sumar! hann er tilbúin með kvótan og allt er klárt.. eina vandamálið er að hann er á níræðis aldri og getur varla gengið.. en það er bara aukaatr. að hans mati!! hhmmmmmm... Hún kemst á kaffihúsin og veitingastaðinna í hverfinnu þannig græna grasið er ekkert alveg ad fara með hana.. Eina vandamálið er, eins og þau sýndu mér, er að í lögum hælisins stendur ad notkun á áfengi jafngildi brottvísun.. Þau voru að ræða það hvort þau ættu að stelast!! þau voru eins og unglingar.. hí hí .. Sem sagt fínt kvöld :)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home